Skip to product information
1 of 1

2GO

2GO Gel Support – Gel innlegg í skó

2GO Gel Support – Gel innlegg í skó

Venjulegt verð 4,299 kr
Venjulegt verð Útsöluverð 4,299 kr
Tilboð Uppselt
m/vsk. Sendingarkostnaður reiknast við lok kaupferils.
Stærð

2GO Gel Support eru dempandi gel innlegg í skó sem taka við höggunum þegar þú gengur, hleypur eða stendur lengi. Botnlagið er úr fjölliðageli sem dreifir þrýstingi jafnt undir fætinum og topplagið úr mjúku pólýester velour, svo innleggin eru þægileg við húðina allan daginn.

Af hverju gel innlegg?

Gelið tekur betur við höggum en venjuleg froðuinnlegg og heldur lögun sinni lengur. Það dregur úr álagi á hæl og framfót, kemur í veg fyrir óþægilegan bruna og dregur úr þreytu í fótum. Innleggin eru örlítið löguð að fætinum fyrir aukinn stöðugleika og stuðning.

Hentar fyrir

  • Takkaskó og íþróttaskó – þar sem höggin eru mest og skórnir oft harðir
  • Vinnuskó og öryggisskó – fyrir þá sem standa eða ganga mikið yfir daginn
  • Hversdagsskó – aukin dempun í skó sem eru harðir undir fæti

Stærðir og notkun

Fæst í stærðum 35–38, 39–42 og 43–46. Settu innleggið beint í skóinn og klipptu til með skærum ef þörf krefur. Best er að nota gamla innleggið sem snið. Handþvottur.

Leitarðu að meiri stuðningi við iljabogann? Sjáðu öll innlegg.

Sjá alla lýsingu