Collection: Skóáburður

Skóáburður – Næring og glans fyrir leðurskó

Góður skóáburður gerir meira en að gefa glans. Hann nærir leðrið, endurnýjar litinn og kemur í veg fyrir að leðrið þorni og springi, svo skórnir endast lengur.

- Skóáburður, svartur og glær – klassískur áburður sem gefur spegilglansandi áferð
- Shoe Cream Premium og Classic – nærandi krem sem endurnýjar lit og verndar allt leður
- Mountain Dubbing – vatnsheld feiti fyrir gönguskó og gróft leður

Svona ber þú á

Burstaðu ryk og óhreinindi af skónum, berðu áburðinn þétt og jafnt á með klút eða bursta og leyfðu honum að þorna. Pússaðu síðan upp í glans. Fyrir fljótlegan glans á milli skóáburðar má nota gljápúða.