Collection: Skóreimar

Skóreimar – Nýtt útlit fyrir gömlu skóna

Það eru litlu smáatriðin sem gera gæfumuninn. Skiptu út gömlu, slitnu skóreimunum fyrir nýjar, leiktu þér með liti og gefðu skónum nýtt útlit, eða eigðu varapar ef þær gömlu slitna. Hjá Reimar.is finnur þú skóreimar fyrir allar gerðir af skóm, frá strigaskóm og fótboltaskóm til spariskóa.

Hvaða skóreimar henta þér?

- Strigaskóreimar – fyrir strigaskó og hlaupaskó, í tíu litum frá svörtu og hvítu yfir í neonliti
- Flatar skóreimar – klassískt og stílhreint útlit á strigaskóm og hversdagsskóm
- Fínar skóreimar – þunnar reimar fyrir spariskó og fína leðurskó
- Fótboltareimar – léttar og sterkar reimar sem þola átök, inni sem úti
- Teygjureimar með lás – þarf aldrei að binda, tilvaldar fyrir börn, hlaup og vinnu
- Sílikonreimar – sveigjanlegar reimar með snúrulás í glaðlegum litum

Hvaða lengd þarf ég?

Einfaldasta leiðin er að mæla gömlu reimarnar. Annars getur þú talið fjölda gatapara á skónum og notað þessi viðmið:

- 2–4 pör – 65 cm
- 4–5 pör – 80 cm
- 5–6 pör – 90 cm
- 5–7 pör – 100 cm
- 6–7 pör – 110 cm
- 7–9 pör – 120 cm
- 9–12 pör – 140–150 cm

Lengd getur verið breytileg eftir skómerki og stíl. Sjáðu alla lengdartöfluna.