Algengar spurningar um umhirðu skóa
Hér fást svör við þeim spurningum sem við fáum oftast um skóreimar, skóáburð, innlegg og umhirðu skóa. Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu á reimar@reimar.is.
Skóreimar
Hvaða lengd af skóreimum þarf ég?
Einfaldast er að mæla gömlu reimarnar. Annars getur þú talið fjölda gatapara á skónum og notað þessi viðmið:
- 2–4 pör: 65 cm
- 4–5 pör: 80 cm
- 5–6 pör: 90 cm
- 5–7 pör: 100 cm
- 6–7 pör: 110 cm
- 7–9 pör: 120 cm
- 9–12 pör: 140–150 cm
Lengd getur verið breytileg eftir skómerki og stíl. Sjáðu alla lengdartöfluna eða allar skóreimar.
Eru til skóreimar sem þarf ekki að binda?
Já. Teygjureimar með lás eru teygjanlegar og með klemmulás, svo skórnir renna á og af án þess að þú þurfir að binda. Þær henta vel fyrir börn, hlaup og vinnu. Sílikonreimar með snúrulás eru annar kostur.
Hver er munurinn á flötum og sívölum skóreimum?
Flatar reimar gefa stílhreint og klassískt útlit og eru algengar á strigaskóm. Sívalar reimar eru algengari á hlaupaskóm, gönguskóm og leðurskóm. Þunnar, fínar reimar henta best á spariskó. Oftast er best að velja sömu gerð og fylgdi skónum.
Skóáburður og glans
Hvernig ber ég skóáburð á leðurskó?
- Burstaðu ryk og óhreinindi af skónum.
- Berðu þunnt og jafnt lag af áburði á með klút eða bursta.
- Leyfðu áburðinum að þorna í nokkrar mínútur.
- Pússaðu upp í glans með hreinum klút eða bursta.
Veldu áburð í sama lit og leðrið, eða glæran ef þú ert óviss. Sjáðu allan skóáburð.
Hver er munurinn á skóáburði og gljápúða?
Skóáburður nærir leðrið, endurnýjar litinn og gefur varanlegan glans, en tekur smá tíma. Gljápúði gefur glans á nokkrum sekúndum og hentar vel á milli þess sem skórnir eru bornir. Best er að nota hvort tveggja.
Hversu oft á að bera á leðurskó?
Fyrir skó sem eru notaðir daglega er gott viðmið að bera á á nokkurra vikna fresti, og oftar í bleytu og salti á veturna. Ef leðrið er farið að líta út fyrir að vera þurrt eða matt er kominn tími.
Hreinsun og vörn
Hvernig hreinsa ég hvíta strigaskó?
Taktu reimarnar úr og burstaðu laus óhreinindi af. Notaðu síðan skóhreinsi með bursta eða klút, þurrkaðu af og leyfðu skónum að þorna við stofuhita, ekki á ofni. Ef hvíti liturinn er orðinn þveginn eða rispaður hylur Sneaker White það. Nýjar hvítar reimar gera oft mestan mun.
Hvernig ver ég skóna gegn bleytu og snjó?
Úðaðu vatnsvörn jafnt yfir hreina og þurra skó og leyfðu henni að þorna vel áður en þú ferð út. Endurtaktu reglulega, sérstaklega á veturna. Vatnsvörnin virkar á leður, rúskinn og textíl og viðheldur öndun. Fyrir gönguskó úr grófu leðri er Mountain Dubbing líka góð vatnsvörn.
Hvernig hugsa ég um rúskinn og nubuck?
Rúskinn og nubuck þola illa venjulegan skóáburð. Notaðu frekar bursta fyrir rúskinn til að fjarlægja óhreinindi og lífga upp á áferðina, rúskinnsumhirðu til að endurheimta litinn og vatnsvörn til að verja það gegn bleytu og blettum.
Hvernig losna ég við lykt úr skóm?
Leyfðu skónum að þorna vel á milli notkunar. Settu lyktareyðandi poka í skóna yfir nóttina eða úðaðu lyktareyði inn í þá. Deo innlegg með virku kolefni hjálpa til að halda lyktinni í skefjum til lengri tíma.
Innlegg
Hvaða innlegg henta við ilsigi eða flatfæti?
Innlegg sem styðja iljabogann, eins og 2GO Galant eða innlegg fyrir lága iljaboga, geta dregið úr álagi og þreytu. Ef þú finnur fyrir viðvarandi verkjum mælum við með því að leita til stoðtækjafræðings eða læknis. Sjáðu öll innlegg.
Hvernig veit ég hvort ég er með lágan, meðalháan eða háan iljaboga?
Einföld leið er að bleyta ilina og stilla sér á blað eða pappa. Sést næstum allur fóturinn er iljaboginn lágur, sést um helmingur hans er hann meðalhár og sést aðeins mjó rönd á milli hæls og táar er hann hár.
Vetur og hálka
Hvaða hálkubroddar henta í bænum?
2GO Free hálkubroddar eru hannaðir fyrir göngu í borgarumhverfi. Þeir passa á flesta skó, auðvelt er að setja þá á og taka af, og þeir geymast í hulstri í vasanum. Fyrir fjallgöngur og jöklaferðir þarf öflugri brodda.
Hvernig ver ég skóna fyrir salti á veturna?
Salt dregur raka úr leðri og skilur eftir hvítar rákir. Þurrkaðu saltbletti af með rökum klút sem fyrst, leyfðu skónum að þorna við stofuhita og berðu síðan á þá næringu eða skóáburð. Vatnsvörn áður en farið er út ver leðrið að hluta. Skóhlífar eru góð lausn fyrir strigaskó í slabbi.