Skilmálar Vefsíðu um notkun á vafrakökum
Skilmálar Reimar.is um notkun á vafrakökum (e. „cookies“) og friðhelgi notenda.
1. Hvað er vafrakaka?
Vafrakaka er lítil skrá, gjarnan samsett af bókstöfum og tölustöfum, sem hleðst inn á tölvur þegar notendur fara inn á viss vefsvæði. Vafrakökur gera vefsvæðum kleift að þekkja tölvur notenda. Nánari upplýsingar um vafrakökur er að finna á www.allaboutcookies.org.
Við notum vafrakökur á vefsvæðinu til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðunnar, til greiningar og til að beina auglýsingum til markhópa. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.
Hverjar eru mismunandi gerðir vafrakaka? Setukökur gera vefsvæðum kleift að tengjast aðgerðum notanda meðan á vafrasetu stendur. Þær eru notaðar í margvíslegum tilgangi, eins og til dæmis að muna hvað notandi hefur sett í innkaupakörfu meðan hann er inni á vefsvæði. Setukökur má einnig nota í öryggisskyni. Setukökur eyðast almennt þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notanda og muna val eða aðgerðir notanda á vefsvæði.
Þá eru vafrakökur ýmist fyrsta aðila kökur eða þriðja aðila kökur. Það ræðst af léni vefsvæðis sem býr til vafrakökuna hvort hún telst fyrsta eða þriðja aðila vafrakaka. Fyrsta aðila vafrakökur verða til á því vefsvæði sem notandi heimsækir. Þriðja aðila vafrakökur verða til á öðru léni en notandi heimsækir. Þeir sem vilja aftengja vafrakökur geta gert það í vafrastillingum. Tekið skal fram að reimar.is ábyrgist ekki nákvæmni eða öryggi efnis á vefsvæðum þriðja aðila.
2. Notkun reimar.is á vafrakökum
Með því að samþykkja skilmála um notkun á vafrakökum er reimar.is meðal annars veitt heimild til þess að:
- Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og síða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna
- Gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum
- Þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun þess
- Birta notendum auglýsingar
- Safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið
reimar.is notar einnig Google Analytics og Facebook Pixel. Þessi tól safna upplýsingum nafnlaust og gefa skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixel nota sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur reimar.is sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google og Facebook. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakakna. Þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar geta slökkt á notkun vafrakakna.
3. Slökkva á notkun vafrakakna
Notendum er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að vafrakökur vistist ekki, eða að vafrinn biðji fyrst um leyfi. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni.
Þú getur hvenær sem er afturkallað samþykki þitt með því að loka á vafrakökur á vefsíðunni eða eyða þeim úr vafranum. Það kann hins vegar að hamla virkni síðunnar að einhverju leyti.
Það er mismunandi milli vafra hvernig stillingum vafrakakna er breytt, en nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi tenglum:
Google Chrome: https://support.google.com/accounts/answer/32050
Firefox: https://support.mozilla.org/en-US/kb/delete-cookies-remove-info-websites-stored
Safari: https://support.apple.com/kb/PH21411?locale=en_US
Notir þú aðra vafra ættir þú að geta fundið upplýsingar um stillingar vafrakakna á vefsíðu vafrans.
4. Hversu lengi eru vafrakökur á tölvum og snjalltækjum notenda?
Vafrakökur eru geymdar í tölvum notenda að hámarki í 24 mánuði frá því að notandi heimsótti síðast reimar.is.
5. Meðferð persónuupplýsinga
Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun vafrakakna eða stofnun áskriftar verða meðhöndlaðar í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. reimar.is lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að framan greinir og að upplýsingarnar verði ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.